Dettur þú stundum í bökunarstuð eða nálgast jólin?
Hérna er ein af dásamlegu smáköku uppskriftunum okkar úr bókinni okkar „Glútenlausar dásemdir fyrir jólin„
Súkkulaði smákökur
1 bolli möndlumjöl
1 msk kakó
1⁄2 tsk kanill
1 1⁄2 tsk hunang
2/3 bolli möndlusmjör
Öllu blandað saman í skál og hrært vel saman.
Rúllið út deiginu og skerið í ca 1 cm þykkar sneiðar og leggið á bökunarpappír.
Bakið við 160 gráður í 8-10 mín.