Til að auka hreinsigetu húðarinnar og starfsemi þessa stærsta líffæris okkar er gott að bursta hana einu sinni til tvisvar á dag.
Best er að skrúbba húðina með hringlaga hreyfingum frá fingrum að nafla og síðan frá tám upp að nafla.
Húðina á að bursta þurra og þannig að hún roðni, þetta er ekkert þægilegast í heimi fyrst en þetta er mjög fljótt að venjast og verða gott.
Best er að gera þetta fyrst á morgnanna eða áður en farið er að sofa og auðvitað með bursta úr náttúrulegum hárum.
SKRÚBBUN MEÐ HEITU HANDKLÆÐI.
Skrúbbun getur verið framkvæmd fyrir eða eftir bað, jafnvel hvenær dags sem er. Allt sem þú þarft er vaskur með heitu vatni og miðlungsstórt bómullarhandklæði.
Leiðbeiningar
Skrúfið frá heita vatninu og fyllið vaskinn.
Haldið í báða endana á handklæðinu og leggið í heita vatnið
Vindið handklæðið.
Byrjið á að skrúbba húðina varlega meðan handklæðið er enn heitt og rakt.
Skrúbbið einn hluta líkamans í einu: t.d. byrjið á höndum og fingrum og vinnið ykkur upp handleggina og axlir, skrúbbið háls og andlit, síðan niður bringuna og efri hluta baksins, kvið, neðri hluta baksins, rasskinnar, fótleggi, fætur og tær.
Skrúbbið þangað til húðin verður aðeins bleik eða þangað til hver líkamshluti verður heitur.
Hitið handklæðið oft með því að dýfa því í heita vatnið í vaskinum, eftir að hafa skrúbbað hvern líkamshluta eða þegar handklæðið byrjar að kólna.
KOSTIR BURSTUNAR/SKRÚBBUNAR
Dregur úr vöðvaspennu.
Eykur orku á morgnana og veitir djúpa slökun á kvöldin.
Opnar svitaholur sem hjálpar til við að losa eiturefni.
Mýkir leifar af harðri fitu undir húðinni og auðveldar þeim að hverfa.
Leyfir auka fitu, slími, appelsínuhúð og eiturefnum að komast út um húðina í staðinn fyrir að safnast fyrir í kringum mikilvæg líffæri.
Dregur úr streitu með róandi nuddi á húðina.
Róar hugann.
Eykur blóðstreymi.
Auðvelt nudd og nærandi sjálfsumönnun.
Dreifir orku í gegnum orkustöðvar líkamans.