Skráning í 10 daga hreinsun fer fram í gegnum vefverslun hér.
Loksins er sumarið að koma á Íslandi og veitir okkur þar með kjörið tækifæri til að huga að þrifum. Flest okkar koma frekar lúin undan vetrinum og með hækkandi sól eykst þörf okkar fyrir aukinni orku.
Við lifum í eitruðu umhverfi og bæði öndum að okkur eiturefnum og borðum eiturefni á hverjum degi. Þegar eiturefni hafa náð að safnast fyrir í líkama okkar getur hann átt í stökustu vandræðum með að vinna vinnuna sína. Hann getur ekki sinnt efnaskiptunum fyllilega, afeitrað okkur, frásogað næringar- og steinefni eða komið í veg fyrir ofþornun. Afeitrun er nauðsynleg til að upplifa heilbrigði, hamingju og til að hjálpa okkur að verjast sjúkdómum.
Nýja 10 daga hreinsunar prógrammið okkar miðar að því að núllstilla líkamann, fylla þig að orku og lífi.
10 daga hreinsunin er auðveld í framkvæmd en mjög áhrifarík.
Innifalið
80 blaðsíðna leiðarvísir
7 daga hugmynd af matseðli
100 uppskriftir af guðdómlega hollum hreinsandi og góðum mat
Ítarleg stöðu skýrsla í upphaf og í lokin
30 daga grunn þjálfunaráætlun
Lokuð facebook grúbba til stuðnings og aðhalds
Prógrammið
Miðar að því að hreinsa líkama okkar af uppsöfnuðum eiturefnum, óþolsvöldum, þrota, þreytu, sykur- og sætuefna fíkn
Þetta gengur út á það að næra sig á hreinni fæðu sem styður við líkama okkar og veitir okkur vellíðan, orku og gleði.
Fyrsta vikan getur reynst erfið þegar sykur, sætuefni, glúten og aukaefni eru tekin úr fæðunni. Önnur vikan er mun auðveldari.
Ekki er nauðsynlegt að kaupa sérstakar vörur en ráðleggingar og leiðarvísir um bætiefni, vítamín og steinefni fylgir. Ekki er nauðsynlegt að taka inn viðbótar bætiefni til að ná árangri.
Ef þú hefur fæðuóþol verður tekið mið að því.
Ávinningur
Hreinni líkami
Dýpri skilningur á áhrifum fæðunnar á líf okkar í heild
Svefnvenjur verða betri. Þú sofnar fyrr og hvílist betur
Orka eykst og skapsveiflur lagast
Þú verður meðvitaðri um næringuna sem líkami þinn þarfnast
Þyngdartap
Meltingartruflanir og þaninn kviður heyra sögunni til
Bætt útlit og fallegri húð
Álagseinkenni minnka
Vatnsdrykkja eykst og skilningur á daglegri vatnsþörf
Hentar þeim sem
Vilja bæta mataræði sitt
Hafa óstjórnlega löngun í óholla fæðu og/eða virðast ekki sitja í bílstjórasætinu þegar kemur að vali á næringu
Eru komnir eru áleiðis í bættu mataræði en skortir hugmyndir og áskoranir.
Stunda íþróttir sem og kyrrsetu fólki, konum jafnt sem körlum
Ummæli frá notendendum
„Ég hefði aldrei geta trúað því að ég ætti eftir að geta verið svona stabíl í mataræðinu. Finn það ef ég borða eitthvað óhollt núna að þolið fyrir því er mun minna. Einhvern tímann hefði ég auðveldlega getað torgað heilum poka af Nóa Kroppi en í dag eru lúka af því meira en nóg. Fallið er miklu styttra niður svo leiðin upp í hollustuna aftur er pís of keik.“
„Snilldar prógramm, svo þess virði“
„3 kg á sex dögum, Ekkert að hata það. Er það bara normal að missa svona á stuttum tíma ?“
„Ég missti 5 kg, Magaummál um 8 cm“